Park Foundation Music App
Home > Releases
Best Af Öllu
Overview
Best Af Öllu --- 1982
BARA ÞAÐ BESTA... Enn hly´tur að vera til fólk í þessu landi, sem man eftir Ríó Tríóinu. Þrír raftar, sem flæktust um landið með slitna kassagítara og hand- knúinn vinnukonubassa og höfðu uppi sprell og ýmsan dáraskap. Meinfyndnir voru þeir oft, strákarnir, og svo fallega tenntir og snyrtir, að haft var á því orð í Velvakanda. Þeir byrjuðu auðvitað á því að stela lögum og stæla aðra en smám saman tók fagmennskan yfirhöndina og áður en nokkur vissi voru þeir farnir að hafa meiningar. Og spila miklu vandaðri músík. Og auðvitað hættir að vera í rauðum jakkafötum eins og júgóslavneskir nætur- klúbbadansarar. Það leikur satt að segja stórlega vafi á, að betri skemmtikraftar hafi verið til í annan tíma á þessu landi. Þetta eru stór orð, - og best er að viðhafa stór orð, þegar ekki þarf að hafa fyrir að sanna þau. Þessar plötur gera það sjálfar. Ef þær eru ekki bara það besta, sem Ríó gerði á sinni tíð, þá eru hér að minnsta kosti talsvert að því besta. Og það er harla gott. Filmuvinna og prentun: Prisma Albúm: Ernst Backman FÁLKINN FA 020/021
Tracklist
Ég Sá þig Snemma Dags
Prestsvísur
Svínið
Nonni Sjóari
Söngur Rosknu Heimasætunnar
Við Viljum Lifa
Fulltrúi Lýðsins
Tár í Tómið
Strákur Að Vestan
Verndararnir Góðu
Og ég Trúi
Kópavogsbragur
Ástarsaga (Lov Storí)
Flagarabragur
Mánablómin
Veizlan á Hóli
Flaskan Mín Fríð
Romm Og Kókakóla
Ó, Gunna
Eitthvað Undarlegt
Verst Af Öllu...
Eina Nótt
Óli Jó
Stebbi Og Lína
Allir Eru Að Gera það