Park Foundation Music App

HOME

Home > Releases

Karlakór Reykjavíkur Syngur Fjórtán Lög Eftir Sigvalda Kaldalóns

Overview

Karlakór Reykjavíkur Syngur Fjórtán Lög Eftir Sigvalda Kaldalóns --- 1971

Síðari hluta ársins 1970 gerði SG-hljómplötur samning við Karlakór Reykjavíkur um útgáfu á sex hljómplötum, sem kæmu út á næstu þremur árum, þar sem tekin yrðu fyrir allt að fjórtán lög á hverri plötu. Lögin eru valin úr hópi elstu íslenzku sönglaga og kórlaga, og hafa mörg þeirra ekki heyrst á hljómplötu eða þá, að eldri hljóðritanir með þeim eru ekki fáanlegar, Þetta er hin fyrsta hljómplatan í þessum flokkiog voru lög eftir tónskáldið ástsæla, Sigvalda Kaldalóns fyrir valinu, en Kaldalóns hefði orðið 90 ára í byrjun ársins 1971 hefði hann lifað.Hér eru flest hans kunnustu lög, að viðbættum nokkrum lítt þekktum og svo enn öðrum sem aldrei hafa verið flutt opinberlega. Karlakór Reykjavikur er kunnasti karlakór Íslands. Hann hefur starfað í áratugi og haldið hljómleika víða um heim. Síðustu árin hefur hinn smekkvísi tónlistarmaður Páll P. Pálsson stjórnað kórnum og eru hinar fersku útsetningar Páls á nokkrum laga Kaldalóns á þessari hljómplötu með því bezta, sem Karlakór Reykjavikur hefur gert um langt skeið. Einsöngvarar með kórnum eru hinir landskunnu söngvarar, Guðrún Á. Símonar, Jón Sigurbjömsson og Sigurður Björnsson ásamt Friðbirni G. Jónssyni, sem er einn kórmeðlima. Aðal undirleikari er Guðrún A. Kristinsdóttir píanóleikari, en auk hennar leika, í mismunandi stórum hópum, tuttugu hljóðfœraleikarar úr Sinfóníuhljómsveit Íslands.

Artist Bio

Artist Details

Videos

Tracklist

Ísland Ögrum Skorið

Heimir

Sjá Nú Hvað Ég Er Beinaber

Suðurnesjamenn

Við Kaldalón

Svanasöngur Á Heiði

Frændi, Þegar Fiðlan Þagnar

Stormar

Við Sundin

Erla, Góða Erla

Á Sprengisandi

Leitin

Ave María

Bærist Varla Blað Á Grein

Labels

SG-Hljómplötur

See video on youtube

By Kyle Larson