Park Foundation Music App

HOME

Home > Releases

Ég Vil Fara Upp í Sveit

Overview

Ég Vil Fara Upp í Sveit --- 2011

HELGI BJÖRNS & REIÐMENN VINDANNA – ÉG VIL FARA UPP Í SVEIT (2011) 6 stjörnur Ef eitthvað virkar – reyndu það aftur. Helgi er búinn að metselja tvær hestaplötur, og því ekki að reyna aftur. Hér er fylgt sömu formúlu. Nokkur klassísk kóralög poppuð upp. Þar eru best „Sprettur (Ég berst á fáki fráum)“, „Ég vil fara upp í sveit“, „Frelsi ég finn“ og „Við förum bara fetið“. Popplög sett í í country búning eins og „Tætum og tryllum“, „Það er svo geggjað að geta hneggjað“ , „Vetrarnótt“ og „Angelía“ Því miður þá er formúlan að þynnast út eða að Helgi hefði kannski átt að vanda betur valið og leggja meiri kraft í verkið. Kannski leyta utanaðkomandi álits eins og hann gerði oft áður. Þetta er ágæt skemmtiplata, helmingurinn góður en hinn helmingurinn hálf slappur. En það geta flestir sungið með og þessi plata verður feikivinsæl nema „Það er svo geggjað“ skemmi fyrir, sem er líklega versta valið og útgáfan á plötunni, en samt lagið sem selt er út á. Ég hefði veðjað á “Sprett”. En, platan er að slá 5000 eintaka sölu sem þýðir gullplata, eða eins og Elvis sagði “5000 Helga Björns fans can’t be wrong” 6 stjörnur Posted on 27/07/2011 by Halldór Ingi Andrésson

Artist Bio

Artist Details

Videos

Tracklist

Ég Vil Fara Upp í Sveit

Einn ég Ríð Til Fjalla

Það Er Svo Geggjað

Ég Er Kominn Heim

Ég Skal Bíða þín

Vetrarnótt

Aneglía

Við Förum Bara Ferið

Sprettur (Ég Berst á Fáki Fráum)

Frelsi ég Finn

Ríðum Sveinar Senn

Tætum Og Tryllum

Labels

Sena

See video on youtube

By Kyle Larson