Park Foundation Music App

HOME

Home > Labels

Tónaflóð-Undraland

Profile

Ný geislaplötuverslun: 1994 Ný verslun verður opnuð mánudaginn 17. október í Miðbæjarmarkaðinum, Háaleitisbraut 58-60. Verslunin hefur hlotið nafnið Tónaflóð og mun starfa að innflutningi og sölu á geisladiskum og öðrum vörum tengdum neyslu á tónlist. ~ Meginmarkmið Tónaflóðs er að selja geisladiska á mun lægra verði en þekkst hefur hérlendis hingað til. Eigandi Tónaflóðs er söngvarinn Pétur W. Kristjánsson. Fyrir utan að framleiða og flytja tónlist undanfarin 20 ár hefur Pétur einnig starfað hjá fyrirtækjunum Steinari hf. og Skífunni hf. Framkvæmdastjóri Tónaflóðs er Sigurgeir Sigmundsson. Sigurgeir hefur starfað við tónlist árum saman og voru þeir Pétur m.a. saman í hljómsveitinni Start. Tónaflóð verður opin kl. 10-19 virka daga og kl. 10-16 á laugardögum. MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16.0KTÓBER 1994

By Kyle Larson