Park Foundation Music App

HOME

Home > Artists

Árni Heiðar Karlsson

Árni Heiðar Karlsson 06.07.1975 / Icelandic Jazz pianist. Árni Heiðar hefur komið víða við í íslensku tónlistarlífi sem píanóleikari, meðleikari, tónskáld og hljómsveitarstjóri, í leikhúsum og kvikmyndum. Hann hefur gefið út tvær sólóplötur með eigin tónsmíðum, „Q“ (2001) og Mæri (2009) sem báðar voru tilnefndar til Íslensku Tónlistarverðlaunanna og sú þriðja, Mold er væntanleg í haust. Árni Heiðar hóf nám í píanóleik í Tónmenntaskóla Reykjavíkur, þá lá leiðin í Tónlistarskólann í Reykjavík þaðan sem hann útskrifaðist árið 2000 undir handleiðslu Halldórs Haraldssonar. Framhaldsnám í klassískum píanóleik stundaði hann hjá píanóleikaranum Martino Tirimo í London og við Háskólann í Cincinnati í Bandaríkjunum þaðan sem hann útskrifaðist með Meistaragráðu árið 2003. Samhliða þessu lauk Árni Heiðar burtfararprófi frá djassdeild FÍH 1997 og stundaði framhaldsnám í djasspíanóleik við Listaháskólann í Amsterdam veturinn 1997-98 þar sem hann naut leiðsagnar djasspíanistans Rob Madna. Listasafn Sigurjóns Ólafssonar – Sumartónleikar 13. ágúst 2013.

By Kyle Larson